|
20.09.2006 16:20:14 / loverboy
Jæja nenni ekki að blogga neitt, En bara svo að fólk viti
þá er ég fluttur í mosó og þér er ávalt boðið í
heimsókn!!
Ég vil óska svanna pizzakóng til hamingju með daginn en hann er
orðinn 30 ára!!!! fokk......
nenni ekki að blogga bæó!!!! --Arnar--
»
03.08.2006 15:26:48 / loverboy
Jæja lokksinns komin niðurstaða um hvert á að fara. En Akureyri
varð fyrir valinu víst að besta veðrið á að vera þar. En ég mæli
með að fólk fjölmenni á staðinn... Ég er einnig að gæla við það að
leggja af stað í kvöld en sjáum til!!!! Sé ykkur á Akureyri!! bæó
»
31.07.2006 17:25:26 / loverboy
Já það þarf nú ekki að segja fólki hvaða helgi er framundan. En
spurningin er hvert á að fara?? BB er búinn að reyna að fá mig til
eyja í svona mánuðuð en ég held að hann sé hættur við...!!! En ég
hef nú ekkert verið spenntur fyrir þjóðhátíð þangað til NÚNA!!! Æji
ég veit ekki.... það er verið að plana útileigu hjá okkur
mosfellingum og ætli að maður fari ekki bara í þann pakkann!!
Ég legg til að við fjölmennum á vel valinn stað og gerum okkar
eigin útihátíð!!
En ég verð að segja aðeins frá helginni...eins og ég var búinn
að segja var afmæli hjá 3000 kallinum upp í sveit í hlöðu!
Hljómur spilaði langt fram eftir morgni við góðar undirtekktir
heimasætanna enda hér fjallmyndarlegir menn á ferð.
Það sem stóð upp úr ferðinni var þessi sænska þema sem spratt
upp þarna um kvöldið, get ekki útskýrt þaðfrekar... en nokkur
stykkorð voru vinsæl...
Volvo, Sænska svítan, Ravanelli, Jaaa, Vinnukonan, Ikea, Astrid
Lingren og Pippi
»
24.07.2006 12:43:28 / loverboy
Já þetta var rosa fín helgi. Föstudagurinn byrjaði vel, geggjað
veður og við strákarnir vorum búnir að plana að fara út að borða en
fórum frekar heim til El Dossó a.k.a Jhonny 2Gs og grilluðum
geggjaðan mat. Þetta var samt fljótt að leysast upp í rólegt party.
en eftir að bjórinn, rauðvínið og vodkaflaskan var búinn skellti
mosókrúið sér í bæinn...rosa fínt. straxxx farinn að hlakka til
næstu helgi þar sem 3000 kallinn á stórafmæli og verður hlöðuball
einhverstaðar í sveitinni. Hljómur ætlar af sjálfsögðu að skemmta
gestum með fallegum gítarslætti og söng!! en bless í bili.. Arnar
»
15.07.2006 18:11:24 / loverboy
Vaá hvað það er allt eitthvað óspennandi þegar veðrið er svona....
en skiptir engu ég verð hvort sem er heima í kvöld, ég og Victor
Orri erum bara að dúlla okkur heima!! ´Vitiði ég er að horfa á Rock
star og mér finnst bara eiginlega flestir sökka þarna....svo eru
þau að segja að þetta séu 14 BESTU söngvarar heimsins!! hvað bull
er það!! En bless í bili.... er að fara í boltaleik!!
»
11.07.2006 08:22:56 / loverboy
Er hætt að vera fyndið!!! Er ekki verið að grínast með þetta
veður!! Arrg!!
»
06.07.2006 12:14:02 / loverboy
Er lokksins komið sumar eða...?? Allavega sól úti!!  En ég fór
til Ólafsvíkur síðustu helgi og fokk hvað það var gaman!!! verð
bara að þakka Slææ og Bölla fyrir að tæla kallinn með!! Verðum bara
að fara í aðra útileigu!!! veit ekki hvað á að skrifa meira bæó!!
herðu já.. núna er kominn fimmtudagur og önnur helgi framundan, Er
einhver með plan?? en hvað með verslunarmannahelgina???
»
13.06.2006 12:43:33 / loverboy
Ég hef nú ekkert merkilegt að segja í þetta skiptið... nema hvað ég
er ósáttur með veðrið!! Arrg í alvöru það er búið að vera haust í
allt sumar. Ég var á æfingu í gær í 20 vindstigum!! Þetta er bara
rugl!! En vonum að þetta skáni eitthvað!! Annars var ég á ísafirði
á sunnudaginn og hitti Hauk og Birnu, sem er ekki frásögufærandi
nema hvað haukur var með RISA glóðurauga og skurð eftir slaksmál á
balli með Bó Halldórs!! Hann er svo mikill "fighter"!! Hvað er
málið með Búlgaríu?? Það eru allir að fara þangað!! Langar svoldið
með verð ég að viðurkenna...!!! Vill einhver bjóða mér til
útlanda?????
»
29.05.2006 08:55:51 / loverboy
Vaá hvað maður er orðinn latur í þessu bloggi... ok það eru rúmlega
þrjár vikur síðan að ég kom heim á klakann. Ég hef nú ekki gert
mikið nema að æfa og vinna, fór reyndar á smá tjútt um helgina.
Addi var í bænum frá akureyri og fórum við á smá bæjarrölt svaka
fjör!!! Hey já við hittum Höllu sem var með okkur í sölden... hún
tóksér smá tíma að þekkja mig með stutta hárið... já Arnar fór í
KLIPPINGU!!! Þekki varla sjálfan mig!! Djöfull var ég samt pirraður
í morgunn þegar ég vaknaði allur í súkkulaði... sofnaði yfir
sjónvarpinu þegar ég var að borða trompbita, það voru svona 5 bitar
bráðnaðir og fastir á bakinu á mér!!! Jæja ástæða til að fara í
sturtu allavega!!  Bless í bili!!!
»
01.05.2006 18:45:35 / loverboy
Ta er nu langt sidan eg bloggadi seinast!!! en eg aetla ad hafa
tad stutt samt sem adur, nebblega staddur a netkaffi tar sem joi
borgadi ekki simreikninginn!!! en allavega ta er allt gott ad
fretta af mer buid ad vera frabaer timi i barcelona joi og gugga
alveg meira en frabaer, gisti hja teim sko!! en a morgunn fer eg
til portugals og flyg tadan heim a fostudaginn!! eg geri
svo einhverja ferdasogu naest er tad ekki!!!!
Bless i bili!!!!
»
11.04.2006 12:46:03 / loverboy
kominn timi á eitt stykki blogg!! Allavega þá er ég staddur í
heimsókn hjá Röggu vinkonu minni sem er bara einum of best í
heiminum fyrir að leifa mér að gista hjá sér og hanga með mér alla
daga!!! Strákarnir sem ég var með í Innsbruck komu svo í heimsókn
og gistu hér lika í eina nótt!! Takk Ragga mín stórt
knus! Ég er að sjálfsögðu búinn að þræða búðirnar í milano
þrátt fyrir rigningu, fjárfesti bara í regnhlíf!! Keypti mér
samt ekkert nema bol, Mætti vera duglegri. En það er
komið að kveðjustund. Ég er að fara til Jóa í Barcelona í
kvöld þó að ég væri alveg til að vera lengur hjá Röggu!!! en
jói ætlar að reyna að kaypa miða á leikinn Barcelona vs
Villereal á sunnudag.... sem væri náttla geggjað!!
Bless í bili!! Arnar
»
05.04.2006 14:07:05 / loverboy
jaeja komid ad tvi ad kvedja austuriki!! sar skilnadur vid
hjolhysid og innsbruck, seinasti dagurinn i fjallinu var
i gaer, 10-14 stiga hiti og glammpandi sol!! gerist ekki betra! en
leidin liggur til milanoborgar og sidan til joa i barcelona!!
kominn sumarfilingur i kappann allt vetrar draslid a leidinni til
islands!!
en tangad til i milano!!! ciao Arnar
»
29.03.2006 11:32:02 / loverboy
Rétt komst á netið örstutt til að
skella inn nokkrum myndum!..
Þær eru hér vinstramegin í "Austurríki
4"

-= Arnar =-
»
23.03.2006 12:20:04 / loverboy
jaeja kominn i trailerinn.... verd ad hafa tetta stutt, er a
internet kaffi i baenum med strakonum vegna leidinlegs
vedurs. en annars er trailerinn frekar stor, en samt er
frekar trongt hja okkur...helvitis islensku stafir...tid verdid
bara ad reyna ad skilja tetta... madur er samt ad fila tessa borg i
taetlur, vaeri alveg til i ad vera herna afram..en kved i
bili....
Arnar
»
14.03.2006 11:49:53 / loverboy
Ætli kallinn hafi ekki skellt sér til læknis í gær, ekkert út af
merkilegu pínu illt í maganum. Þetta byrjaði nú sem ósköp venjuleg
læknisviðtal en allt í einu kemur hjúkkan, tekur í hendina á mér og
stingur mig með nál í puttann og byrjar að kreysta blóð úr
puttanum. DÍSES það var nú hægt að vara mann við.....svo fóru þau
eitthvað með blóðið í vél sem prentaði hvað var að manni.og viti
menn.... Læknirinn sagði að ég væri fárveikur með vírus, hita og
skildi ekkert í því hvað ég var að gera á fótum. Er tæknin ekki
yndisleg. Veit ekki fynnst ég ekkert vera veikur..eða þannig.
Þannig að ég er bara heima í dag að klára að pakka því á
föstudaginn er maður að fara til Innsbruct . Vill svo skemmtilega
til að Haukur félagi minn héðan úr sölden er búinn að redda
hjólhýsi fyrir okkur strákana... hehe já hjólhýsi hversu magnað er
það í svona “trailerpark” geggjað!!! enda erum við allir byrjaðir
að safna í góða mottu....það er skylda!! En þetta verður spennandi,
vona að trailerinn sé upphitaður!!!! En ætla reyna að setja myndir
í kvöld......
Adios
-Arnar- “hvítt hyski”
»
Síður: 1 2
|