-=Arnar=-
29.05.2006 08:55:51 / loverboy

Kominn heim

Vaá hvað maður er orðinn latur í þessu bloggi... ok það eru rúmlega þrjár vikur síðan að ég kom heim á klakann. Ég hef nú ekki gert mikið nema að æfa og vinna, fór reyndar á smá tjútt um helgina. Addi var í bænum frá akureyri og fórum við á smá bæjarrölt svaka fjör!!! Hey já við hittum Höllu sem var með okkur í sölden... hún tóksér smá tíma að þekkja mig með stutta hárið... já Arnar fór í KLIPPINGU!!! Þekki varla sjálfan mig!! Djöfull var ég samt pirraður í morgunn þegar ég vaknaði allur í súkkulaði... sofnaði yfir sjónvarpinu þegar ég var að borða trompbita, það voru svona 5 bitar bráðnaðir og fastir á bakinu á mér!!! Jæja ástæða til að fara í sturtu allavega!! :) Bless í bili!!!
Alma skrifaði
mig langar i trompbita!!! :) kvedjur ur solinni i bulgariu!!!! :)
Arnar skrifaði
Ég held að það séu nokkrir eftir... svoldið kramdir og með littlu súkkulaði!!
Alma in bulgaria!! :) skrifaði
ok geymdu tha! .. fae tha thegar eg kem heim :)
Guðný Lára skrifaði
hahaha súkkulaðistrákurinn.. Ég er samt ánægð með klippinguna þína,, fer þér rosa vel :)
Arnar skrifaði
Já held að klippingin sé alveg málið!!
Helgi skrifaði
Velkominn heim kall, kannski maður ætti líka að láta rýja hausinn á sér... er Addi orðinn stutthærður líka?
Íris Thelma skrifaði
noh hvað kom til að þú klipptir þig ???
Arnar skrifaði
Addinn stendur enþá fyrir sínu, með brjálaðann lubba og vona að hann haldi áfram!!!!:) En Hvað Íris... líst þér ekkert á það?? Ég varð bara að leggja hárteygjunni!!:)
Íris Thelma skrifaði
hehe, ég á nú enn eftir að sjá þig með þetta stutta hár ;) en jú ég held að þetta sé málið hehe, hlakka til að sjá það hehehe ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.