24.07.2006 12:43:28 / loverboy
Fín helgi
Já þetta var rosa fín helgi. Föstudagurinn byrjaði vel, geggjað
veður og við strákarnir vorum búnir að plana að fara út að borða en
fórum frekar heim til El Dossó a.k.a Jhonny 2Gs og grilluðum
geggjaðan mat. Þetta var samt fljótt að leysast upp í rólegt party.
en eftir að bjórinn, rauðvínið og vodkaflaskan var búinn skellti
mosókrúið sér í bæinn...rosa fínt. straxxx farinn að hlakka til
næstu helgi þar sem 3000 kallinn á stórafmæli og verður hlöðuball
einhverstaðar í sveitinni. Hljómur ætlar af sjálfsögðu að skemmta
gestum með fallegum gítarslætti og söng!! en bless í bili.. Arnar